Ljóð tileinkað stúkunni " Framtíðinni " nr. 173

Hvatningarljóð

Glæðir þú visku með natni í næði,

nærandi lífsþrek og knýjandi störf,

bæta vilt heilsu með hollustu fæði,

heilbrigði styrkja og sálar þörf.

 

 

Gæfan er ofin úr þessum þáttum,

þekkja allt sem er bjart og milt.

Þá áttu heiður með sönnum sáttum

sigrandi ylinn og nú er skylt.

 

Daglega hérna á verði að vaka

vandað með þerk og gjöfult traust.

Oft er af mörgu svo mætu að taka

í máttugum vilja sem fyrr þú hlaust.

 

 

Til þess að lyfta og leysa úr vanda,

landsfólkið styrkja á framtíðarbraut.

Veldu hið rétta með röskleik í anda,

með réttvísi iðninnar leysist hver þraut.

 

 

Framtíðar gæfu þú blessunar biður,

bíða þín störfin svo áhugaverð.

Í framtaki lofsverðu leitandi styður

lífsmátann réttan, á sigrandi ferð.

 

(samið 24.febrúar 2008)

 

Bjarni Th. Rögnvaldsson.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Þakka þér fyrir að deila þessu ljóði með okkur,  þetta er sko enginn leirburður heldur alveg frábær kveðskapur.  Ég er mikill ljóðunnandi og tek ofan fyrir þér vegna þessa, Kærleikskv. HH

Hulda Haraldsdóttir, 11.10.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjarni Theodór Rögnvaldsson

Höfundur

Bjarni Theodór Rögnvaldsson
Bjarni Theodór Rögnvaldsson

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 653

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband